|
|
28.08.2008 23:39:33 / steinunn
Jæja, þá er fyrsta vika skólans að klárast .. loksins (A) haha, finnst eins og ég sé búin að vera í skólanum í svona mánuð, hún er búin að vera svo lengi að líða :/ er samt aðallega bara stærðfræðin sem er að gera hann svona agalegan, enda er ég í 7 stæ.timum á viku og í svona 3 tíma að læra heima í henni þar sem ég skil ekki baun! en nóg um stærðfæði, óþarfi að tala um hana aukalega 
Ökklinn minn virðist allur vera að koma til, sem er náttúrulega bara snilld. Gat í dag gengið svona þokkalega venjulega í fyrsta skipti, mjög gott. Kíkti líka til sjúkraþjálfara og hann teipaði mig alla sundur og saman svo nú er ég með góðan stuðning við fótinn Alveg spurning hvort að ég komist jafnvel ekki bara á eina æfingu um helgina, væri ekki leiðinlegt Þarf svo bara að passa mig að verða ekki veik, sit á milli Péturs & Annýjar og þau eru bæði svona skemmtilega kvefuð og veik hehe, týpískt að ég smitist 
jæja, ég held svo að ég endi þetta blogg bara á þvi að segja ykkur að við erum að fara að fá okkur lítinn, sætan hund .. er svona bichon frise og kemur til með að heita Kútur held ég, fáum hann eftir bara viku    aagalega krúttlegur, ekki satt? 
annars á gamli afmæli í dag, 53 ára gamall kallinn. hann & mútta samt ekki heima, skelltu sér bara í veiði hehe .. varla búin að sjá þau í 2 vikur, svona aðeins farin að sakna þeirra (A) eeen gott í bili 
-Steinunn Helga =)
»
23.08.2008 20:50:54 / steinunn
jææja, nú hef ég ekkert að gera og þá held ég að það sé bara kominn tími á blogg 
á miðvikudaginn vaknaði ég eldsnemma og horfði á ísland-pólland sem var auðvitað bara snilld. þá dreif ég mig bara að taka mig til og fór svo í klippingu sem er ekki frásögufærandi nema það að konunni tókst að klippa á mig topp .. alltaf tekst þeim að gera það sem maður biður þær um að gera alls ekki. en já, svo skellti ég mér bara í ræktina í 2 tíma, kom svo heim og þreif og svo hjólaði ég í 2 tíma með kristínu. var alveg búin að gleyma því hvað það er gaman að hjóla oo jæja, svo var ég bara heima að þrífa um kvöldið og eitthvað svona.
á fimmtudaginn beilaði ég á ræktinni og kúrði bara. svo var bara skólasetning um 3 og viti menn, fengum við ekki strax heimavinnu þá! svo sum ekki mikil hehe, en samt smá. ég fór svo bara aðeins upp í kringlu og þegar ég kom heim voru frænkur okkar frá Brussel mættar, ásamt ömmu gömlu þær stoppuðu í kaffi og svo komu gömlu heim úr veiði og svona. um kvöldið kíkti ég svo á æfingu. varð samt heldur pirruð á henni svo ég skellti mér bara í ræktina eftir hana hehe. svo var það bara svefninn góði.
í gær var svo fyrsti skóladagurinn. fengum einmitt gott frí til að horfa á leikinn og svona, áfram ísland jæja, svo fór ég bara heim að læra, horfði á nágranna og tók svo strætó upp í mosó þar sem ég var á u17 æfingu frá 8-10. kom þá bara heim eftir hana oog það var svefn.
dagurinn í dag var ekki svo góður. byrjaði með æfingu frá 10-12 sem var reyndar alveg fín. var svo bara að chilla uppí ásgarði á milli æfinga, læra og svona hehe, ýkt dugleg jæja, svo tók við seinni æfingin kl. hálf 4. ég entist þó ekki nema í svona hálftíma á æfingunni þar sem mér tókst að misstíga mig í upphituninni og togna á ökkla .. vona bara að það sé ekkert meira að. þannig að já, ég kom bara hingað heim og er búin að vera skröltandi um á öðrum fæti, hoppandi upp og niður stigana hehe ligg samt núna bara uppi í sófa með tölvuna á mallanum, fótinn uppi á púða, klakapoka á vinstri hönd, hitapoka á hægri hönd og svo að sjálfsögðu með smá nammi (A) er samt ekki frá þvi að þetta hefði ekki getað gerst á verri tíma .. ekki nema 2 vikur í u19 mót og svo 4 vikur í u17 mót .. og svo náttúrulega æfingahelgar þar inn a milli. en ég verð þá bara að vera dugleg að reyna að hreyfa fótinn og svona, þó svo að það sé agalega vont :/
en ég held að ég fari bara að segja þetta gott í bili, arna&guðný eru að koma til mín með ís og svona, algjörar snúllur ;*
-Steinunn fatlafól!
»
19.08.2008 22:47:08 / steinunn
Jææja, þar sem ég hef nákvæmlega ekkert að gera hef ég verið að velta því fyrir mér að byrja að blogga aftur. Skulum nú sjá til hvernig það gengur Allavega, ég er búin að vera í fríi núna síðan 8. ágúst þegar ég hætti að vinna. Er bara búin að fara í ræktina á morgnana og svo chilla á daginn, stússast eitthvað og svona. Mjög næs sko. Skólinn svo að byrja á fimmtudaginn, veit ekki alveg hvort ég er að nenna að fara í hann aftur :/ Sumarið er búið að vera svo allt of fljótt að líða. Ætla að deila því aðeins með ykkur 
Júnímánuður fór í það að vinna alla virka daga, 2 u17 helgar hérna í bænum og svo skellti ég mér á bíladaga norður á Akureyri .. Var þar eiginlega bara með Stefaníu & Bylgju allan tímann, fínasta skemmtun Svo kepptum við Birta & Theó líka á strandblaksmóti í byrjun júní og enduðum þar í 3. sæti. Það var samt heldur skondið mót þar sem veðrið var ekki alveg nógu gott, svo mikill vindur að þegar maður var búinn að kasta boltanum í uppgjöf var alveg spurning hvort maður gæti slegið hann yfir þvi hann gæti verið fokinn í burtu hehe.
  
Í júlí skellti ég mér svo á lopapeysuballið á írskum dögum á Akranesi með Bylgju, Birtu & Stefaníu. Helgina eftir það var svo u19 helgi í Neskaupstað, þá kom næst u19 helgi á Akureyri og helgina eftir það skellti ég mér svo til Akureyriar með familyjunni og var þar í góðri afslöppun Svo var það auðvitað bara vinnan á virkum dögum.
     
Ágúst byrjaði svo með verslunarmannahelginni þar sem ég var að sjálfsögðu á Neistaflugi í Neskaupstað Stefanía, Birta & Bylgja komu einmitt líka þangað og það má segja að við höfum skemmt okkur vel saman. Ég kláraði svo vinnuna 8. ágúst og er buin að vera að dunda mér síðan aðallega. Gerðist smá nörd líka og ákvað að fara að lesa meira. Núna síðustu 2 vikurnar kláraði ég loksins Engla & Djöfla, las þá Harry Potter 6 og í morgun kláraði ég svo Flugdrekahlauparann sem er án efa ein besta bók sem ég hef lesið. Svo voru u19 æfingar um helgina sem voru mjög fínar, bara með frekar mikil brunasár eftir þær hehe.
  
  
Jæja, framundan er svo bara skólasetning á fimmtudaginn og fyrsti skóladagurinn á föstudaginn. Þá eru u17 æfingar þessa helgi, u19 æfingar helgina eftir það, norðurlandamót u19 á akureyri helgina eftir það (þeas ef maður kemst í u19 liðið ), u17 æfingar helgina eftir það og þá loks norðurlandamót u17 í svíþjóð 19-21 september. Heldur betur nóg að gera 
En ég held að ég fari að segja þetta nóg í kvöld. Sjáum bara til hversu dugleg ég verð að blogga áfram hehe 
-Steinunn Helga
»
18.03.2007 21:12:00 / steinunn
jææja, ætla að deila helginni minni aðeins með ykkur 
á föstudeginum vaknaði ég ss snemma til að skella mér á skíði
með höllu. gott að komast loooksins á þau aftur eftir uþb ár :/
kíkti líka aðeins á bretti, en við skulu bara ekkert tala meira um
þaað ! jæjaa, ég kom svo heim og tók mig til og skundaði
svo í sund með dabba. jájá, rosa fint þar svoo var haldið til
arons að horfa á nágranna og eftir það var ég sótt og ég fór hjem
að borðaa. tók mig svo til og kíkti til davíðs um kvöldið og var
þar til 12. svoo bara heim að sofa.
svaf looksins út á laugardeginum. jæja, svo var ég alveg
eldsnögg að taka mig til og svo fór ættin upp á sel í afmæli til
systur ömmu. 88 ára orðin en váá, fór að hugsa þarna að mig
langar bara ekkert að verða svona gömul :/ alveg hrikalegt hvernig
fólk getur farið af þessu .. svona er þetta víst bara. en já,
var þarna í tæpa 2 tíma og þá var haldið til höllu að spilaa haha
.. eins og venjulega vil taka það fram að ég rústaði henni í
gettu betur .. tvisvar geri aðrir betur hehe. een svo var það
bara matur til siggz og svo bubbles 8-) um hálf 10 var svo haldið
til davíðs. jæja, svo ákvað hann að fara til arons um hálf 12 og
við héldum þá út í kuldann. ég gafst upp og endaði í 10-11 þar sem
sigga frænka sótti mig ;D . jájá, svo var það bara bubbles og sofa
=)
í daag var maður svo vakinn með símhringingu frá mömmu og 10 mín
síðar voru foreldrarnir mættir að sækja mann. pff, þvílíkar kröfur!
een við forum ss um hálf 12 og vorum í einhverja rúma 6 tíma á
leiðinni. pabbi náttúrulega eitursvalur á sumardekkjum haha!
skemmtilegt. svoo er ég bara búin að vera í tölvunni og ekki að
nenna að pakka upp.
vil bara þakka öllum fyrir fráábæra helgii !;* .. hefði alveg
verið til í að ná að hitta fleirii, een næst bara :]
jæja, ætla svo að enda þetta blogg á tvíförum 

kristó á ólafsfirði & aron páls á akureyri.
skuggalega líkir, ekki satt? kannski ekki besta myndin af aroni,
en hvað finnst ykkur?
nennekkimeiruíbilii! 
-steinunn;*
»
11.03.2007 20:01:29 / steinunn
»
09.03.2007 18:16:24 / steinunn
þar sem speiglusíðan hefur verið lögð niður tímabundið hef
ég ákveðið að byrja aftur með þessa. veit ekki hversu lengi það
endist, en það kemur bara allt í ljós.
í rauninni er ekki mikið að frétta af mér. helgin verður að öllum
líkindum frekar róleg og svo er blakmót með 3.flokki á sunnudaginn.
helvítis vesen í kringum það, allir hættir, meiddir eða veikir.
glæsilegt stelpur 
næsta helgi verður hins vegar nokkuð góð býst ég við. skíðaferð hjá
10.bekk í bláfjöll 14-16 mars sem ég fer ekki í þar sem ég ætla
bara frekar að reyna að komast til akureyar þar strax á
miðvikudeginum og vera þar fram á sunnudag. mikið betra að kíkja
bara í fjallið þar ! 
svo er ég búin að skoða þrjá framhaldsskóla. fór í MR um daginn og
leist enn betur á hann heldur en ég gerði fyrir. svo kíkti ég í MK
og hann virðist vera rosalega fínn, bara frekar langt í burtu. ætli
maður endi ekki bara þar ef maður kemst ekki inn í betri skóla.
enda kannski ekkert svo slæmt fyrst að hún guðný ætlar þangað í
gær fór ég svo í verzló og mér leist líka mjög vel á hann. svo
valið stendur aðallega á milli MR & Verzló. svo er það heimsókn
í Borgó á mánudaginn ef ég man rétt. að sjálfsögðu væri toppurinn á
veröldinni að skella sér í menninguna á Akureyri og fara í MA, en
það er víst ekki hægt.
ég held að ég hafi þetta bara ekkert lengra í bili, þarf að fara
að kaupa ólívur fyrir mömmu haha ! svo ég ætla að enda þetta á
skemmtilegri mynd úr blakbúðunum sem voru á akureyri fyrir tveimur
vikum.

jææja bríet mín, á hvern ertu nú að horfa ? ;*
-steinunnhelga.
»
21.11.2006 23:47:17 / steinunn
Jáá, þessi helgi var nú með þeim betri sko Á föstudagskvöldinu
fór ég bara upp í Mosó og hitti þar alla að austaan !;* óótrúlega
gaman að hitta þau öll. Hitti svo líka hana Laufeyju frá grundó,
skemmtilegt það jæja, svo vorum við bara e-ð að fíflast þarna og
ég held að við höfum farið að sofa um hálf 2.

Jæja, svo vaknaði maður nú snemma á laugardeginum, fór í
morgunmat og svo var haldið út í íþróttahús að horfa á þá leiki sem
voru að byrja. Hitti líka Gumma grundóó og svona ! Svo held ég að
við höfum keppt e-rja 3 leiki þennan daginn eða svo og unnum við
alla keppti svo einn með 2. flokki og þá á móti Þrótti Nes oooog
við töpuðum hehe. svo bara flýtti ég mér að sturta mig og svona
og svo um 7 kom Arnar Þór að ná í mig og við skelltum okkir í
bæinn. Jæja, þá var leiðinni haldið í fríkirkjuna á Sufjan Stevens
tónleikana ! hápunktur helgarinnar og örugglega bara lífs míns
sko ! shiiit, ég kemst ekki yfir það hvað var gaman. geggjaðir
tónleikar í alla staði Þeim lauk svo um 11 og þá röltum við bara
aðeins og var ekki bara byrjað að snjóa :] geggjað kósý ! jæja,
svo um hálf 12 kom frændi hans að sækja okkur og henti mér svo út í
mosó.
Takk fyrir mig 

Á
sunnudaginn var svo bara vaknað snemma líka, pakkað saman, farið í
morgunmat og svo að keppa keppti 3 leiki með 3. flokki, unnum 2
og töpuðum svo á móti þrótti hehe .. og svo einn með 2.flokki á
móti þrótti sem við töpuðum aftur Jæjaaa, svo var bara mótið
búið oog maður kvaddi alla og kom svo bara heim í chill.

Svo í dag&gær eru það bara búnar að vera æfingar og
skóli og þannig verður það bara út þessa viku. Arna sæjta er svo að
koma til mín á fimmtudaginn og við ætlum að sjálfsögðu að horfa
saman á Herra Ísland Svo er Hafrún að koma á
sunnudaginn&mánudaginn og maður ætti nú að geta hitta hana
eitthvað .. oog svo er Víkingur að koma enn einu sinni á u17 ára
úrtaksæfingar ! til hamingju stráksi, svoo stolt af þér !;* ..
annars held ég bara að þetta sé komið já ! .. oog til hamingju
með hálfs árs afmælið Speiglarnir !;*

-SteinunnHelga
»
16.11.2006 21:15:04 / steinunn
»
12.11.2006 18:48:01 / steinunn
Í dag er sunnudagur.
Mætti á æfingu og þá áttum við að vera
boltasækjarar.
Við sluppum samt við það eftir mikið
pirr.
Mótinu var frestað.
Það verður næstu helgi í mosó.
Við gistum líklegast ekki þar.
Ég þarf því að fara snemma til að fara á
Sufjan Stevens.
Get ekki hitt stelpurnar mínar
mikið.
Kristín&Valgerður keppa kannski
ekki.
Það er skóli á morgun.
Mér er illt í bakinu.
Ég bý ekki lengur á
Neskaupstað.
Ég missti af Neighbours.
Allar spólurnar mínar eru ofan í
kassa.
Ég get því ekki horft á
kærleiksbirnina.
Ég komst að því í fyrradag að ég á að vera
búin með rúmlega 200bls. enskubók
fyrir 1.des
Ég er að fara í dönskupróf í vikunni
(held ég).
Ég þarf að fara í próf á
1.des.
Ég má ekki fara í VA eða
MA eftir 10.bekk.
Ég er
bitur.

-steinunnhelga
»
07.11.2006 01:27:10 / steinunn
Daginn fólk :]!
heyrðu jáw, dagurinn í dag snerist nú bara allur um það að
taka til inni hjá mér. vaknaði og byrjaði bara strax enda
veitti ekkert af, það var ekki mannsbjóðandi að koma hingað
inn (A)! enda er herbergið orðið voða voða sætt&fínt núna
^^ en jáw, svo rétt fyrir 7 náðum við mamma í
kristínuu;* og við skjelltum okkur saman á blakæfinguu :]!
var bara fínt þar svo sum. jæjah, svo komum við bara hingað
heim til mín og fengum okkur að borða og horfðum á tekinn
& so you think you can dance. oog borðuðum .. og borðuðum
.. og borðuðum haha ! en allavega þá var mjöög svo gaman að
fá þig í heimsókn :]!;* jæjah, svo fór ég bara í sturtu og
hingað niður að læra í ensku. er að druuukkna í enskunni :/
bæði mikið að gera og ég líka svona hriikalega léleg í þessu.
ekki sniðugt een það þýðir lítið að væla, ekki eins og
náminu verði eitthvað breytt fyrir mig 
jæja, gaman að segja frá því að hún bríet var alveg viðbjóðslega
vond við mig í dag! haldiði að hún hafi ekki bara logið því að mér
að þær stelpurnar kæmu ekki á mótið því Iðunn væri að fara til
Svíþjóðar og það hafi verið tekin sú ákvörðun að leyfa þeim þá ekki
að fara því það fannst enginn til að fara með þeim. og ég trúði
þessu auðvitað og sat hérna með tárin í augunum bríet mín,
ég á eftir að hefna mín .. bíddu bara !
jájá, annars veit ég bara ekkert hvað ég get sagt meira :/ er búin
að vera obbosslega dugleg að setja inn e-ð á síðuna eða breyta.
getið bara skoða það í hvað er nýtt dálknum :] en allavega já, ætla
að henda inn einhverjum svona spurningum sem ég fann á einhverri
síðu.
1. Hvað höfum við þekkst
lengi?
2. Hvað fannst þér um mig fyrst þegar þú sást/hittir mig?
3. Hvað finnst þér um mig núna?
4. Hugsaru einhvern tímann um mig?
5. Hefur þig dreymt mig?
6. Hefur þig dagdreymt mig?
7. Hefuru kysst mig?
8. Myndi þig langa að kyssa mig?
9. Myndi þig langa að gera eitthvað meira með mér?
10. Hefuru gert eitthvað meira með mér ?
11. Myndi þig langa að hitta mig núna?
12. Hver er besta minningin okkar?
13. Hver er versta minningin okkar?
14. Hvort hugsaru frekar neikvætt um mig eða jákvætt?
15. Lýstu mér í 3-5 orðum.
Jæja, vera svo dugleg að commenta á þetta
:]! er að gera mitt besta hérna við að halda síðunni lifandi og
já!! vil benda öllum á diskinn puppy með togga. brjálaður diskur
een jáw, nóg í bili ;*
-steinunnhelga
»
05.11.2006 17:01:25 / steinunn
»
29.10.2006 16:38:28 / steinunn
Föstudagur; Fór bara í skólann eins og venjulega og kom
svo heim og horfði á nágranna og spænsku sápuna sem er
náttúrulega baara snilld ! svo hringdi freydís í mig og við
fórum uppí kringlu og hittum þar svein má .. röltum bara
þarna um og svona, hittum svo líka gumma grundó jájájá ..
svo kom reynir og við fórum öll uppí smára sem var já, líka
bara fínt hehe. svo bara tók ég strætó heim og jáh. svo
um kvöldið kom freydís til mín og við vorum bara e-ð að
chilla og svona og jáh .. svo var smá beil þarna á okkur um
kvöldið svo freydís fór bara heim og ég var frekar pirruð svo
ég fór bara að sofa um 11 
Laugardagur; vaknaði og gerði mig klára og svo um 2 kom
víkingur að ná í mig og við fórum upp í kringlu. geeðveikt að sjá
hann !;* jájá .. vorum bara þarna að chilla saman, bara rölta og
spjalla og svona svo um 4 kom stebbi aftur að sækja okkur ég fór
bara heim að leggja mig :] svo um kvöldið kom jóhann egs til mín
=)!;* .. vorum bara e-ð hérna heima að chilla þar sem ég var veik
hann fór svo e-ð um 1 og þá lagðist ég uppí forstofu og ákvað
bara að sofa þar til að geta verið tilbúin að hlaupa á klósettið ef
ég þyrfti að æla. og það líka borgaði sig 
Sunnudagur; jáh, vaknaði í dag e-ð 20 mín í 11 og bara foookk,
alveg að missa af strætó! svo ég hentist fram úr og 12 mín seinna
var ég komin upp í strætó mætti svo þarna á æfingu alveg eins og
ég veit ekki hvað og gat ekki blautan úr mátt-&næringarleysi
(Y) flott ég! .. jæja, svo kláraði ég æfinguna, alveg með æluna í
kokinu svo ég hringdi í vinnuna og sagðist ekki getað mætt. jæja,
svo ég strætóaðist bara heim, sturtaði mig og svo er ég bara hér á
náttfötunum að horfa á antm ! uss, maður ætti kannski bara
að vera oftar veikur? .. frí í vinnunni 6 er búin að missa 2 kg af
þessu stelpur, gölturinn ykkar verður horfinn áður en þið vitið
af hah ekki slæmt þetta 
en já, ætla bara að skella hérna inn nokkrum af uppáhalds
myndunum mínum 

húsið
miiitt <3

fermast

júróvisjónpartý

aww,
sakna kkar;*

svalastar?

haha:*

óójá


jáá,
hver man ekki þegar við fórum útaf á leiðinni til sey með eyda?


<3;*

haha
seinasta baðferðin okkar gunnslu 
:')

jeee(H)

sakna
ykkar ;*
jáh,
eins og þið kannski sjáið er ég með brjálaða heimþrá sakna
ykkar oof mikið !;*
»
24.10.2006 09:52:33 / steinunn
jææja, ég er svona aðeins að velta því fyrir mér hvort ég ætti
að byrja aftur með
þessa síðu þar sem speiglurnar eru
hættar? ,, ætlaði bara svona að fá ykkar
álit á því, einhver sem er game í að fara að skoða þessa síðu
aftur, eða er þetta ég bara að gera mér vonir um
að e-r eigi eftir að skoða hana aftur á meðan hún er svo löööngu
dottin úr tísku ef svo má segja hehe een já, hvað finnst
ykkur?
-steinunnhelga
»
11.09.2006 23:05:29 / steinunn
»
07.09.2006 07:41:37 / steinunn
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Heimsóknir
Í dag: 3 Alls: 37427
|